Nýtt

Vinnumarkaður

18.11.2009 : Viðamikil rannsókn um kyn og völd afhjúpar karlaveldi í atvinnulífinu

Konur á Norðurlöndum hafa sótt mjög í sig veðrið í stjórnmálum en í atvinnulífi ráða karlar enn lögum og lofum. Niðurstöður nýrrar jafnréttisrannsóknar verða kynntar á ráðstefnunni Kyn og völd 18.-19. nóvember. Lesa meira
 
vinnumalaradherrar NL

12.11.2009 : Ráðast þarf gegn langtímaatvinnuleysi ungs fólks

Norrænir vinnumálaráðherrar hittust á árlegum fundi sínum sem haldinn var í Reykjavík 11. nóvember. Lesa meira
 
Norrænir fánar

28.10.2009 : Átak til að styrkja norrænan tungumálaskilning meðal barna og unglinga

Markmið að efla skilning á dönsku, norsku og sænsku, styrkja kennara og skóla í tungumálakennslunni og þróa nýjar aðferðir í kennslu í norrænum tungumálum.  Lesa meira
 

Eldri fréttir


Norrænn áttaviti

Formennska Íslands í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2009

JörðinNorrænu ríkin skiptast á um að fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og leiða starfsemina eitt ár í senn. Á árinu 2009 kemur það í hlut Íslendinga að gegna formennsku í nefndinni.


Yfirskrift formennskuáætlunar Íslands er Norrænn áttaviti. Í fjórum undirköflum er gerð grein fyrir helstu áherslumálum, en rauður þráður er að stórefla skuli rannsóknir og nýsköpun, ekki síst á sviði orku- og umhverfismála. Einnig er verndun hafsins eitt af áherslumálunum svo og gerð vákorts fyrir Norður-Atlantshafið.

Stefnumiðin eru undir fjórum meginþemum:


Sjá pdf-útgáfu af formennskuáætluninni í heild sinni.

Norræna ráðherranefndin er samsett úr 10 ráðherranefndum fagráðherra. Hún ber ábyrgð á norrænum rannsóknarverkefnum, stofnunum, starfsemi norrænu upplýsingaskrifstofanna, alþjóðlegum samningum og sáttmálum.

Sjá bækling um Norrænu ráðherranefndina

Íslendingar gegndu síðast formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2004 undir yfirskriftinni Auðlindir Norðurlanda.

 





Stoðval