Formennskuáætlun um umhverfismál 2009

Stulka gróðurseturÍ umhverfismálum verður sjónum beint að loftslagsmálum og málefnum hafsins. Einnig verður horft til hinnar sérstæðu náttúru Norðurlanda, hugmyndafræði náttúruverndar og samspils verndar og nýtingar náttúruauðlinda. Liður í því er fræðslu- og kynnisferð fyrir norræn ungmenni í Vatnajökulsþjóðgarð.

Íslendingar leggja ríka áherslu á norrænt samstarf um málefni Norðurskautsins og vilja í því sambandi nefna sérstaklega áætlun norrænu umhverfisráðherranna um loftslagsmál og mengun á norðurslóð. Einnig er mikilvægt að treysta samstarfið við Norðurskautsráðið.

Meðal verkefna sem Íslendingar leggja til að ráðist verði í er gerð vákorts fyrir Norður-Atlantshafið. Slíkt kort er forsenda þess að bregðast megi skipulega við mengunarslysum, en á undanförnum árum hafa siglingar olíuskipa aukist verulega í norðurhöfum.

Sjá formennskuáætlun um umhverfismál í heild sinni (pdf-skjal).





 

 

Dagatal

Ágúst 2010
SMÞMFFL
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        




Stoðval