Áætlun sviða
Hvert fagsvið setur sér áætlun
Sérhvert fagsvið og ráðherraráð hjá Norrænu ráðherranefndinni gerir sína eigin árlegu áætlun fyrir samstarfið. Áherslur Íslendinga á formennskutímanum endurspeglast í öllum áætlunum, svo og hnattvæðingarstefna forsætisráðherranna sem kynnt var á árinu 2007. Ellefu ráðherranefndir um hin ýmsu fagsvið starfa innan Norrænu ráðherranefndinnar. Samstarfsviðin sem gefa út formennskuáætlun eru:
- Atvinnulíf, orku- og byggðamál
- Félags- og heilbrigðismál
- Jafnrétti
- Lagasamstarf
- Vísindi, menning og menntun
- Sjávarútvegur, landbúnaður, matvæli og skógrækt
- Umhverfismál
- Vinnumarkaður

