Sjávarútvegur, landbúnaður, matvæli og skógrækt
Norræn samkeppnishæfni
Formennskuáætlun um sjávarútveg, landbúnað, matvæli og skógrækt
Með samkeppnishæfni að leiðarljósi verður áhersla lögð á þau svið þar sem Norðurlönd skara fram úr og þá þætti sem nýtast þeim best sameiginlega. Afkoma frumframleiðslu-greina verður ofarlega á baugi ásamt því að standa vörð um hag og þarfir neytenda. Í þeim efnum verður m.a. horft til norrænnar matvælaframleiðslu með öryggi, sjálfbærni og rekjanleika í huga.
Norðurlönd hafa ávallt lagt mikið til mála þegar kemur að sjávarútvegs-málum, skynsamlegri auðlindanýtingu og nýsköpun. Tekið verður sérstak-lega á þessum þáttum á formennskuári. Unnið er að úttekt á áhrifum og afleiðingum loftslagsbreytinga á frumframleiðslugreinarnar.
Meðal viðburða á formennskuári er viðamikil matvælaráðstefna, ráðstefnu um líftækni og ráðstefnu um nýsköpun í sjávarútvegi. Að auki verður haldin ráðstefna um hagkvæmni fiskveiðistjórnunarkerfa, ekki síst hvernig megi beita þeim til að bregðast við loftslagsbreytingum.
Sjónum verður einnig beint að samstarfi á sviði nýsköpunar, rannsókna og þróunar við nágrannasvæði í norðvestri, einkum austurströnd Kanada, Skotland og Írland. Þetta er nátengt þeirri sýn að efla beri vestnorrænt samstarf.
Sjá pdf-útgáfu af formennskuáætlun um sjávarútveg, landbúnað, matvæli og skógrækt

