Aflvaki
Norrænn aflvaki
Á formennskuári verður lögð áhersla á þverfaglegt samstarf stjórnvalda, stofnana og fyrirtækja til að stuðla að rannsóknum, nýsköpun og útrás atvinnulífs. Lykilatriði er að nýta til fulls þá sérþekkingu sem Norræna rannsóknarráðið,
Norrænar orkurannsóknir, Norræna nýsköpunar-miðstöðin og Norræna stofnunin um rannsóknir og þróun í byggðamálum búa yfir. Með fjölþættu samstarfi fyrirtækja og stofnana verður leitast við að efla þekkingarmiðlun og nýsköpun á öllum sviðum. Forgangsverkefni er að gera Norðurlönd að framúrskarandi, aðlaðandi og samtengdu svæði til rannsókna og frumkvöðlastarfs.
Í menntamálum verður tekið mið af sameiginlegum markmiðum um viðbrögð við hnattvæðingu. Efnt verður til þverfaglegs samstarfs sem miðar að því að efla skapandi hugsun, nýbreytni og frumkvöðlamenningu á öllum stigum skólakerfisins. Áfram verður unnið að framgangi verkefnis um norrænar meistaragráður og að því að markaðssetja Norðurlönd sem eitt háskólasvæði. Þá verður leitast við að efla símenntun og festa heildstæða símenntunarstefnu í sessi.
Listmenntun, menning og skapandi atvinnugreinar gegna æ mikilvægara hlutverki í hagkerfinu. Norðurlönd geta með því að styrkja skapandi iðnað nýtt sköpunarkraftinn til að ná forystu í menningartengdum atvinnugreinum. Menntakerfin þurfa jafnframt að taka mið af fjölgun nýbúa, greiða fyrir aðlögun þeirra og nýta þá auðlind sem felst í fjölmenningarlegu samfélagi.
Einn af grunnþáttum í stefnumótun á vettvangi norræns samstarf er að Norðurlönd verði sameiginlegt atvinnu- og markaðssvæði. Íslendingar munu leggja áherslu á að opna norrænan markað, s.s. fyrir lyf og heilbrigðisþjónustu, efla norrænt velferðarsamfélag og styrkja samstarf við grannsvæðin.
Ný samstarfsáætlun í byggðamálum tekur gildi 2009 og nær hún til ársins 2012. Íslendingar munu leggja allt kapp á að þegar verði farið að vinna eftir henni, ekki síst á sviði rannsókna og nýsköpunar.
Verk að vinna
- Samstarfi um öndvegisrannsóknir verður hleypt af stokkunum. Það mun beinast að sérhæfðum verkefnum á sviði orku-, umhverfis- og loftslagsmála og byggja á sömu grunnhugsun um tengsl rannsókna og nýsköpunar og á Norræna rannsókna- og nýsköpunarsvæðinu.
- Hafinn verður undirbúningur að öndvegisrannsóknum í heilbrigðis- og velferðarmálum.
- Unnið verður að því að efla tengsl milli Norræna rannsóknarráðsins, Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar og Norrænna orkurannsókna og samskipti þeirra við heimastofnanir í löndunum.
- Farið verður ofan í saumana á norrænni hvítbók um nýsköpun m.t.t. nýrra markmiða til að styrkja nýsköpunarhæfni í norrænu atvinnulífi.
- Átak verður gert til að kynna Norðurlönd sem öflugt alþjóðlegt háskólasvæði og ýtt undir samstarf háskóla og háskólastofnana.
- Unnið verður að gagnkvæmri viðurkenningu á háskólagráðum og gæðaeftirliti með norrænum háskólum. Haldin verður ráðstefna 16.-17. apríl 2009 um gæði í háskólastarfi.
- Sjónum verður beint að hlutverki listmennta á öllum skólastigum og samspili þeirra við fræðasvið á háskólastigi. Á ráðstefnu verður rætt með hvaða hætti listaháskólar geta ýtt undir skapandi hugsun, nýsköpun og frumkvæði á öllum sviðum þjóðlífsins.
- Haldið verður málþing um menntun og aðlögun nýbúa.
9. júní, Hótel Selfoss.
- Fylgt verður eftir rannsókn Norrænu stofnunarinnar um rannsóknir og þróun í byggðamálum sem staðfestir góð áhrif af að hafa háskóla þar sem byggja á upp byggðakjarna. Niðurstöður verða kynntar á ráðstefnu.
- Leitað verður leiða til að styðja frumkvöðlastarf í dreifbýli og fámennum byggðalögum. Kannað verður sérstaklega hvernig styðja má við nýsköpunarstarf kvenna
- Efnt verður til málþings um samstarf og stöðlun á þjónustu er tengist orku, samgöngum og öryggi.
- Unnið verður að því að opna norrænan lyfjamarkað til að efla samkeppni. Kannað verður hvort svigrúm sé fyrir þátttöku fleiri ríkja í tilraunaverkefni Íslendinga og Svía um gagnkvæm markaðsleyfi fyrir lyf. Íslendingar leggja jafnframt áherslu á að opna markað fyrir heilbrigðisþjónustu. Greint verður hvaða hindranir eru á því og settar fram tillögur til að ryðja þeim úr vegi.
- Haldið verður málþing um heilbrigðisþjónustu óháð norrænum landamærum. Sjá meira.
- Hafinn verður undirbúningur að sameiginlegri kynningu Norðurlanda á heimssýningunni í Sjanghæ 2010, s.s. á á sviði umhverfis- og orkutækni, hönnun og listum.

