Vákort
Vákort yfir Norður-Atlantshafið
Eitt af meginstefnumiðum Íslendinga á formennskutímanum í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2009 er að efla samstarf Norðurlanda um verndun Norður-Atlantshafsins og treysta samstarf um málefni Norðurskautsins. Liður í því er að hrinda úr vör metnaðarfullu verkefni um gerð vákorts fyrir Norður-Atlantshafið, sem á að vera grundvöllur fyrir samræmdar aðgerðir komi til umhverfisslyss.
Í náinni framtíð má búast við auknum siglingum stórra skipa um norðurhöf í lögsögu Grænlands, Íslands, Færeyja og Noregs. Það er því mikilvægt að þessi lönd vinni saman að því að fylgjast með þessari umferð og þróun hennar ásamt því að safna saman upplýsingum um hina viðkvæmu náttúru norðurslóða og undirbúa viðbrögð við mengun af völdum olíu og/eða annara efna.
Upplýsingum um náttúrufar og viðkvæm svæði sem gætu verið í hættu verður safnað saman og settur saman gagnagrunnur með hafkortum, áhættumati og viðbragðsáætlunum á hafsvæðunum milli Noregs og Færeyja og Íslands og Grænlands. Með slíku vákorti er verið að bregðast á ábyrgan hátt við auknum umsvifum og siglingum í norðurhöfum, m.a. vegna aukinnar ásóknar í auðlindir á heimskautasvæðunum.
Leitast verði við að hafa veflausnina og vefkortið það aðgengilegt og hraðvirkt að það skili tilætluðum árangri. Einnig er hugsanlegt að ganga þannig frá gögnunum að þau megi amk. að hluta til skoða í Google Earth og etv. fleiri miðlum.
Stýrihópur með þátttakendum frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og Noregi hefur verið settur á stofn og myndar hann stjórn verkefnisins og starfsmaður hefur verið ráðinn til verksins.
Í stýrihópnum eru Kristján Geirsson (Umhverfisstofnun, Íslandi) sem jafnframt er formaður hópsins, Rune Bergström (Kystverket, Noregi), Suni Petersen (Umhvörvisstovan, Færeyjum) og Ruben Svendsen (Heimastjórninni, Grænlandi). Starfsmaður verkefnisins er Hans H. Hansen (Umhverfisstofnun, Íslandi).
Nú þegar hefur farið fram nokkur undirbúningsvinna sem aðallega hefur verið fólgin í því að skoða önnur verkefni af svipuðum toga, safna þeim gögnum sem nú þegar eru aðgengileg og gætu nýst við verkefnið og ennfremur að skoða nýjustu tækni og lausnir við gerð vefkorta sem völ er á um þessar mundir.
Mikið af grunngögnum hefur verið safnað og má þar nefna ýmis yfirlitskort sem ná yfir allt svæðið, gervitunglamyndir, hæðarmódel, dýptarkort ofl.
Gert er ráð fyrir að vákortið verði tilbúið í lok árs 2010.

