Hnattvædd Norðurlönd
Hnattvædd Norðurlönd
Norrænt samstarf tekur mið af alþjóðasamfélaginu og þeim tækifærum sem felast í hnattvæddum heimi. Norðurlönd standa sterkari saman í samstarfi við önnur ríki og á vettvangi alþjóða-stofnana þar sem unnið er að sameiginlegum hags-munamálum.
Samstarfið við Eystrasalt er sem fyrr mikilvægur þáttur í starfsemi ráðherra-nefndarinnar. Á formennskutímanum verður hrint í framkvæmd fjögurra ára áætlunum um samstarf við Eistland, Lettland og Litháen annars vegar og við Norðvestur-Rússland hins vegar.
Í alþjóðastarfi setja Íslendingar í forgang að vinna að verndun hafsins og treysta samstarf um norðurslóðamál. Jafnframt er forgangsmál að auka samstarf norrænna þjóða við grannsvæði í vestri, einkum Austur-Kanada, Skotland og Írland. Sjónum verður beint að samstarfi um rannsóknir og nýsköpun. Áhersla verður lögð á að styrkja Norræna Atlantshafssamstarfið sem fram fer á vettvangi NORA.
Framtíðarstefnumótun um verndun hafsins er ein meginstoðin í skipulögðum viðbrögðum við loftslagsbreytingum á norðurslóð. Íslendingar leggja ríka áherslu á rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga á hafið sem grundvöll fyrir samræmdar aðgerðir. Jafnframt er mikilvægt að fylgjast stöðugt með lífríki sjávar m.t.t. mengunarhættu og staðsetja og vernda viðkvæm svæði.
Mikilvægt er að virtur sé réttur og ábyrgð þjóða til sjálfbærrar nýtingar á öllum lifandi auðlindum hafsins. Norðurlönd ætla áfram að hafa forgöngu um þessi áherslumál í fjölþjóðlegu samstarfi.
Norðurlönd eiga aðild að mikilvægum alþjóðasamningum á borð við OSPAR og HELCOM sem fjalla um vernd norrænna hafssvæða. Einnig er unnið að ýmsum verkefnum á öðrum vettvangi, t.d. innan Norðurskautsráðsins og hjá Sameinuðu þjóðunum. Á vettvangi OSPAR-samningsins er um þessar mundir unnið að stöðuskýrslu um ástand hafsins. Norðurlöndum ber að taka virkan þátt í skýrslugerðinni sem og öðru starfi innan ramma OSPAR-samningsins.
Íslendingar leggja áherslu á að norrænu ríkin vinni saman á vettvangi Norðurskautsráðsins. Í því tilliti er starf PAME-vinnuhópsins (Protection of the Arctic Marine Environment) afar mikilvægt, en það nær m.a. til mats á áhrifum siglinga í ört breytilegu umhverfi í norðurhöfum. Einnig benda Íslendingar á mikilvægi svæðisáætlunar Sameinuðu þjóðanna sem miðar að því að verja hafsvæði norðurslóða gegn mengun frá landsstöðvum (Regional Programme of Action). Um þessar mundir er á vettvangi PAME unnið að uppfærslu svæðisáætlunarinnar fyrir norðurslóðir og er ráðgert að hún verði tilbúin á árinu 2009. Hún er mikilvægur grunnur fyrir Norðurlönd til að vinna eða uppfæra sínar landsáætlanir um verndun hafsins.
Náttúra á norðurslóð hefur mikið aðdráttarafl. Byggja þarf upp náttúru- og menningartengda ferðaþjónustu á afskekktum og dreifbýlum svæðum. Með því er stuðlað að aukinni samkeppnishæfni Norðurlanda sem einstaks áfangastaðar fyrir ferðamenn.
Verk að vinna
- Hrint verður í framkvæmd stefnumiðum um samstarf ráðherra-nefndarinnar við Eistland, Lettland, Litháen og Norðvestur-Rússland fyrir tímabilið 2009-2013.
- Leitast verður við að efla samstarf við grannríki Norðurlanda í vestri, sérstaklega Kanada.
- Íslendingar munu efna til samstarfs við grannþjóðir um að vinna vákort fyrir Norður- Atlantshafið. Það er forsenda þess að hægt sé að bregðast skipulega við mengunarslysum, t.d. vegna aukinna siglinga í norðurhöfum og vaxandi auðlindanýtingar.
- Leitast verður við að styrkja frekar samstarf og verkaskiptingu Norðurskautsráðsins og ráðherranefndarinnar. Jafnframt verður haldið áfram stuðningi við svæðisbundin samtök og samstarfsverkefni á norðurslóðum.
- Vinnuhópur verður stofnaður til að bera saman hagkvæmni ólíkra fiskveiðistjórnunarkerfa á Norðurlöndum og skoða hvernig megi beita þeim til að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga. Niðurstöðurnar verða kynntar á ráðstefnu í september.
- Ráðstefna um nýsköpun í sjávarútvegi.
12. maí, Hótel Saga Reykjavík. - Ráðstefna um öryggi, sjálfbærni, hreinleika, hollustu og rekjanleika matvæla. 15.-17. nóvember, Grand hóteli Reykjavík.
- Verkefnið Ný norræn matvæli verður þróað áfram til að stuðla að nýsköpun í matvælaframleiðslu og markaðssetningu norrænna matvæla.
- Frumkvæði verður haft um að kynna ímynd Norðurlanda á fjarlægum mörkuðum
- Málþing um nýsköpun og gæði í ferðaþjónustu.

