Loftslagsvandi
Svar Norðurlanda við loftslagsvanda
Viðbrögð Norðurlanda við loftslagsbreytingum snúast annars vegar um að fyrirbyggja og draga úr umfangi þeirra og hins vegar að því að aðlagast þeim sem best í atvinnulífi og við nýtingu auðlinda.
Íslendingar og aðrar Norðurlandaþjóðir leggja ríka áherslu á að árangur náist á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í árslok 2009 og að unnið verði að því í norrænu samstarfi að greiða fyrir samningum. Semja verður um sameiginlega framtíðarsýn og mælanlegar aðgerðir til að draga úr losun. Finna þarf heildarlausnir við fjármögnun og tækniyfirfærslu og setja reglur um bindingu og losun kolefnis vegna breyttrar landnotkunar og skógræktar. Íslendingar hafa þegar lagt fram tillögu um að endurheimt votlendis verði valkostur og leggja jafnframt áherslu á að græða upp land sem leið til að binda kolefni.
Norrænu ríkin eru hvert á sínu sviði í fremstu röð í nýtingu vistvænna orkugjafa. Tryggja verður að sérþekking þeirra á því sviði nýtist sem víðast í veröldinni. Til að ná því markmiði munu Norðurlönd taka virkan þátt í evrópsku og alþjóðlegu orkusamstarfi og hleypa af stokkunum verkefnum sem taka mið af því að þróa nýja orkutækni. Áhersla verður lögð á vistvæna orkunotkun í samgöngutækjum, sérstaklega í skipum.
Þverfagleg úrlausnarefni sem tengjast stefnumótun alþjóðasamfélagsins í loftslagsmálum munu vega þungt í norrænu fjármálasamstarfi t.d. aðgerðir í skattamálum sem miða að því að stemma stigu við losun gróðurhúsalofttegunda.
Verk að vinna
- Starf vinnuhóps um orkunotkun á strjálbýlum svæðum á Vestur-Norðurlöndum verður eflt og m.a. horft til orkunýtingar í fiskiskipum og samgöngutækjum. Einnig verður leitað eftir samstarfi við strjálbýl svæði við Norðvestur-Atlantshaf.
- Unnið verður að nýrri fjögurra ára framkvæmdaáætlun í orkumálum.
- Hugbúnaður til að reikna út verð á orkugjöfum og hversu miklu eldsneyti ýmsar tegundir bifreiða eyða verður þýddur og gerður aðgengilegur á netinu. Markmiðið er að efla vitund neytenda um orkunotkun og útblástur gróðurhúsalofttegunda. Sjá meira um hugbúnaðinn á heimasíðu Orkuseturs.
- Ráðstefna um sjálfbærar orkulausnir fyrir bifreiðar og skip.
14. - 15. september 2009. - Vinnuhópi á vegum ráðherranefndar um sjávarútveg, landbúnað, matvæli og skógrækt verður falið að gera úttekt á áhrifum og afleiðingum loftslagsbreytinga á frumframleiðslugreinar.
- Hrint verður úr vör verkefni til að kortleggja hvaða áhrif breytingar á loftslagi munu hafa á atvinnulíf og mótun atvinnustefnu á Norðurlöndum. Verkefnið verður kynnt á ráðstefnu í september.
- Framlag Norðurlanda til að fræða almenning um sjálfbæra þróun, aðlögun að loftslagsbreytingum og aðgerðir í loftslagsmálum verður kynnt á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn 2009.
- Haldinn verður norrænn viðburður um jafnrétti og loftslagsbreytingar samhliða fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York í mars 2009. Í kjölfarið verður gerð skýrsla og hún kynnt á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn 2009.
- Verkefnum um landnýtingu og kolefnisbindingu verður ýtt úr vör og unnið verður að því að framfylgja markmiðum Selfoss-yfirlýsingarinnar um sjálfbæra skógrækt.
- Efnt verður til samstarfs um endurheimt skemmdra vistkerfa.
- Fulltrúum æskufólks á Norðurlöndum verður boðið í náms- og kynnisferð um Vatnajökulsþjóðgarð, stærsta þjóðgarð Evrópu, í því skyni að kynna þeim hugmyndafræði náttúruverndar og hvernig samtvinna má vernd og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda.
- Gerð verður greining á því hvernig nýta má líftækni í jarðrækt, búfjárrækt, fiskeldi og skógrækt.
- Á grundvelli Selfoss-yfirlýsingarinnar um sjálfbæra skógrækt verður áhersla lögð á trjákynbætur til að stuðla að aðlögun að loftslagsbreytingum.
- Skipulögð verður kynning á norrænum erfðaauðlindum hjá fastanefnd Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
- Unnið verður að því að þróa einfalt umhverfisstjórnunarkerfi sem hentar litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Einnig verður kannað hvernig votta má slík kerfi.
- Gert verður átak til að styrkja norræna umhverfismerkið Svaninn í sessi. Farið verður yfir tillögur sem fram komu við endurskoðun á merkinu á árinu 2008 og safnað saman dæmum um góðan árangur af markaðssetningu þess.

