Fréttir
Þemaumræða um Norðurlönd og Evrópusambandið á 61. þingi Norðurlandaráðs
61. þing Norðurlandaráðs verður haldið dagana 27.-29. október 2009, í þinghúsinu í Stokkhólmi. Þar sem Svíar fara með formennsku í Evrópusambandinu á síðari hluta þessa árs verður þemaumræða þingsins um Norðurlönd og ESB. Forsætisráðherrar norrænu ríkjanna og leiðtogar stjórnarandstöðu munu taka þátt í umræðunum sem fram fara síðdegis 27. október.
Norðurlandaráð var stofnað á árinu 1952 og er samstarfsstofnun norrænu þjóðþingana. Á því sitja 87 fulltrúar frá öllum norrænu ríkjunum og sjálfsstjórnarsvæðunum.

