Fréttir
Ráðstefna um velferð á krepputímum
Hvernig er hægt að hlúa að þjóðinni á krepputímum og hvers konar gildi og viðhorf viljum við að ríki í samfélaginu? Leitað verður svara við þessum og öðrum spurningum á ráðstefnunni Velferð á tímum efnahagsþrenginga sem haldin verður á Hótel Sögu miðvikudaginn 21. október, kl. 9-16:15.
Markmiðið er að miðla þekkingu á því hvernig draga megi úr áhrifum kreppunnar og laða fram nýjar og skapandi lausnir fyrir samfélagið.
Annar aðalfyrirlesara er dr. David Stuckler frá Oxfordháskóla sem m.a. mun ræða um áhrif Alþjóðagjaldeyrisjóðsins á heilbrigðiskerfi í þeim löndum sem hann hefur lánað til, sem og áhrif fjármálakreppunnar á heilsufar almennt. Dr. Michael Steger frá Colorado State háskólanum mun fjalla um hvernig vinna megi með styrkleika á erfiðum tímum. Aðrir fyrirlesarar, m.a. frá Finnlandi og Færeyjum, munu fjalla um félagsleg áhrif efnahagsþrenginga og miðla reynslu af afleiðingum bankahruna.
Ráðstefnan Velferð á tímum efnahagsþrenginga er eitt af formennskuverkefnum Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni og er skipulögð af Lýðheilsustöð, heilbrigðisráðuneyti, félags- og tryggingamálaráðuneyti, menntamálaráðuneyti, Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Hún er öllum opin, en er sérstaklega ætluð sveitarstjórnarfólki, stjórnmálamönnum, heilbrigðisstarfsfólki, starfsfólki félagsþjónustunnar, fulltrúum atvinnulífs og fræðimönnum. Allir fyrirlestrar eru á ensku.
Sjá viðtal við aðalfyrirlesara ráðstefnunnar David Stuckler.

