Fréttir

Norrænir fánar

Átak til að styrkja norrænan tungumálaskilning meðal barna og unglinga

28.10.2009

Samstarfsráðherrar Norðurlanda samþykktu á fundi sínum í Stokkhólmi 28. október að hrinda úr vör herferð sem miðar að því að efla norrænan tungumálaskilning meðal barna og ungs fólks. Kannanir undanfarin ár hafa sýnt að mjög hefur dregið úr skilningi æskufólks á tungumálum frændþjóða sinna.

Þetta tungumálaátak er eitt af formennskuverkefnum Íslendinga. Það hefst snemma á næsta ári og mun standa í eitt ár. Markmiðið er að efla skilning á dönsku, norsku og sænsku og m.a. gera ungum Norðurlandabúum kleift að hittast og ræðast við, styrkja kennara og skóla í tungumálakennslunni og þróa nýjar aðferðir í kennslu í norrænum tungumálum. 

Dæmi um átaksverkefni er samkeppni 12-14 ára barna um hver veit mest um Norðurlönd og norræn orð og hugtök, dreifing á menningartengdu kennsluefni á vefnum og menntun sérstakra handleiðara (sprogpiloter) í kennslu norrænna tungumála. Þá verður efnt  til verðlauna fyrir tölvuleik  sem kennir leikskólabörnum dönsku, sænsku og norsku. Tungumálaátakinu mun ljúka með samnorrænum viðburði í lok árs 2010.

    



 

The requested resource (/eplica/jsp/stdinclude/java.lang.NullPointerException) is not available




Stoðval