Fréttir
Viðamikil rannsókn um kyn og völd afhjúpar karlaveldi í atvinnulífinu
Aukin áhersla á jafnrétti og þrýstingur frá kvennahreyfingunni hafa ráðið úrslitum um að konum hefur fjölgað í stjórnmálum á Norðurlöndum undanfarin 15 ár. Í atvinnulífinu ráða karlar þó lögum og lofum enn sem fyrr. Þetta kemur fram í viðamiklu norrænu rannsóknaverkefni um kyn og völd í stjórnmálum og atvinnulífi.
Niðurstöðurnar verða kynntar á ráðstefnunni Kyn og völd sem haldin verður 18.-19. nóvember á Grand Hóteli í Reykjavík.

