Norræna samstarfsnefndin
Norræna samstarfsnefndin - NSK
Norræna samstarfsnefndin (NSK) fundar reglulega og tekur meðal annars ákvarðanir um fjárveitingar til ýmissa verkefna á formennskutímanum. Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar situr alla fundi samstarfsnefndar sem jafnan er falin framkvæmd helstu ákvarðana í norrænu samstarfi.
Snjólaug Ólafsdóttir skrifstofustjóri Norðurlandaskrifstofu stýrir starfi Norrænu samstarfsnefndarinnar (NSK) á formennskuári Íslendinga, en embættismenn í ráðuneytunum stjórna störfum í hinum ýmsu embættismannanefndum fagsviða. Þeim til aðstoðar eru ráðgjafar á skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn.
Aðrir fulltrúar norrænu ríkjanna í Norrænu samstarfsnefndinni NSK:
Niels A. Velbastad fyrir Færeyjar
Jørgen S. Søndergaard fyrir Grænland
Tanja Heiberg Storm fyrir Noreg
Johan Tiedemann fyrir Svíþjóð
Gunnar Westerholm fyrir Álandsseyjar
Peter Munk Jensen fyrir Danmörk
Kim Luotonen fyrir Finnland.
Sjá fulltrúa Íslendinga í norrænum embættismannanefndum.
Sjá fundi í Norrænu samstarfsnefndinni 2009

