Nefndir
Ráðherrar og embættismenn
Íslendingar samhæfa samstarf norrænu ríkisstjórnanna á árinu 2009 og hafa frumkvæði að ýmsum aðgerðum og ráðstöfunum á meðan þeir gegna formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Þeir stjórna fundum í öllum samstarfsnefndum, hvort heldur er í fagráðherranefndum eða embættismannanefndum. Einnig stjórna þeir samráðsfundum ríkisstjórnanna um Evrópumál og önnur alþjóðamál á öllum stjórnstigum.
Snjólaug Ólafsdóttir skrifstofustjóri Norðurlandaskrifstofu stýrir starfi Norrænu samstarfsnefndarinnar, en embættismenn í ráðuneytunum stjórna störfum í hinum ýmsu embættismannanefndum fagsviða. Þeim til aðstoðar eru ráðgjafar á skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn.
Ráðherra- og embættismannanefndir
Norrænir ráðherrar starfa saman í 10 ráðherranefndum ef samstarfsráðherrar eru undanskildir. Undir hverri og einni starfar embættismannanefnd
- Norræna ráðherranefndin um menningarmál
- Norræna ráðherranefndin um menntun og rannsóknir
- Norræna ráðherranefndin um vinnumarkaðsmál
- Norræna ráðherranefndin um atvinnu-, orku- og byggðamál
- Norræna ráðherranefndin um sjávarútveg - landbúnað og skógrækt - og matvæli
- Norræna ráðherranefndin um jafnrétti
- Norræna ráðherranefndin um efnahagsmál og fjármálastefnu
- Norræna ráðherranefndin um lagasamstarf
- Norræna ráðherranefndin um umhverfismál
- Norræna ráðherranefndin um félags- og heilbrigðismál
Fulltrúar Íslendinga í norrænum embættismannanefndum

