Foreldraorlof
Foreldra- og fæðingarorlof á Norðurlöndum
Rannsókn og ráðstefna 22. október 2009.
Markmið rannsóknarinnar er að sýna fram á samhengi lögbundinna aðgerða til að tryggja foreldrum ungra barna orlof til að annast þau og möguleika kynja til að öðlast frama á vinnurmarkaði. Lög um foreldra- og fæðingarorlof í norrænu ríkjunum eru ólík og verða fijórir þættir skoðaðir:
1) Hvernig konur og karlar nýta réttindi sín til fæðingar- og foreldraorlofs
2) Dagvistunarmöguleikar eftir að fæðingarorlofi lýkur
3) Hvernig tveir ofannefndir þættir hafa áhrif á frama og kjör kynja á vinnumarkaði
4) Hvernig aðkoma kynja að umönnun hefur áhrif á velferð barnsins og jafnrétti í samfélaginu.
Rannsóknin verður unnin í samráði við embættismannanefndina um vinnumál (ÄK-A) og í samstarfi við Jafnréttisstofu. Gengið er út frá því að unnið verði með fyrirliggjandi tölfræði en að gagna verði aflað eftir atvikum, til dæmis vegna stefnugreiningar. Niðurstöður rannsókna verða gefnar út í bók og kynntar á ráðstefnu á Íslandi haustið 2009.
Sjá nánar um ráðstefnuna. (pdf)
Sjá undirvef um formennskuverkefni Íslendinga á jafnréttissviði.

