List án landamæra

List án landamæra

Íslenska lista- og menningarhátíðin List án landamæra verður þróuð frekar og kynnt á norrænum vettvangi. Markmið er að greiða fyrir aðgangi fatlaðra að listum og menningarstarfi og gera listsköpun þeirra sýnilegri.

Hátíðin sem haldin verður á vormánuðum á Íslandi ( frá 22. apríl og út maímánuð) verður með norrænu ívafi, því danski listhópurinn Karevane verður meðal þátttakenda og mun setja upp sýningu í Norræna húsinu.

Á haustmánuðum 2009 verður í tengslum við norrænu stuttmyndahátíðina Nordisk Panorama haldin ráðstefna um þáttöku fatlaðra í listsköpun og norrænu menningarlífi.



 





Stoðval