Vatnajökull

Náms- og kynnisferð um Vatnajökulsþjóðgarð

norraen_ungmenni vid BreidamerkurlonMarkmið þessa verkefnis er veita norrænu æskufólki tækifæri til að ferðast um Vatnajökulsþjóðgarð og fræðast um hugmyndafræði náttúruverndar og leiðir til að samþætta vernd og auðlindanýtingu. Þátttakendur munu að ferðinni lokinni miðla þekkingu sinni til jafnaldra í heimalöndunum.

Í ferðina verður boðið tveimur fulltrúum norrænu ríkjanna og sjálfsstjórnarsvæðanna. Ferðin verður farin sumarið 2009 og verður dvalið viku í Skaftafelli, gengið um svæðið, farið í fjallaklifur og fræðst um náttúrufar, ferðaþjónustu og fleira.

Í Vatnajökulsþjóðgarði gefst einstakt tækifæri til að fræðast um íslenska náttúru og náttúrumótun á virku eldgossvæði með jöklum og vatnsmiklum jökulám. Þar má líka fræðast um áhrif loftslagsbreytinga á náttúrufar á norðurslóð.

Verkefnið tengist öðrum verkefnum norrænu ráðherranefndarinnar .s.s. áætlun um sjálfbæra þróun fyrir tímabilið 2009-2012 þar sem sérstaklega er fjallað um menntun og samstarf norræns æskufólks.

Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður á árinu 2008. Hann er stærsta náttúruverndarsvæði á Íslandi og stærsti þjóðgarður Evrópu.  

 





Stoðval