Viðburðir
Viðburðir á formennskuári
Á formennskutímanum verður efnt til á fjórða tug viðburða á Íslandi. Fagsviðin munu standa fyrir málþingum og ráðstefnum og allar embættismanna-nefndir og ráðherranefndir munu funda hér á landi. Stærsti viðburðurinn verður hnattvæðingarþingið í Bláa lóninu í febrúar, þar sem forsætisráðherrar Norðurlanda, sérfræðingar og fulltrúar atvinnulífsins hittast og ræða fjármálakreppuna og loftslags- og umhverfismál.
Á formennskutíma Íslendinga verður líka unnið ötullega að undirbúingi loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í Kaupmannahöfn í árslok 2009. Þar munu Norðurlönd standa að ýmsum hliðarviðburðum, s.s. kynningu á umhverfistækni og leiðum til að fræða almenning um sjálfbæra þróun.

