Rannsókn - æskufólk

Norræn rannsókn á viðhorfum, menningu og lífsháttum æskufólks.

Á formennskuári verður efnt til samstarfs um samanburðarkannanir á viðhorfum norrænna ungmenna, eftir aldri og kyni, til íþrótta-, félags- og tómstundastarfa, menntunar og væntinga til framtíðar.

Þrjár slíkar kannanir hafa verið gerðar á Íslandi frá árinu 2000 og miða þær að því að skapa grundvöll fyrir stefnumótun í málefnum ungs fólks á aldrinum 16-18 ára. Rannsóknir og greining mun hafa yfirumsjón með úrvinnslu gagna í norrænu könnuninni.

Niðurstöður verða gefnar út í skýrslu og kynntar á ráðstefnu á Íslandi 15. -16. apríl 2010.

 





Stoðval