Hvítbók
Hvítbók um nýsköpun
Á formennskustímanum verður unnið að því að uppfæra norræna hvítbók um nýsköpun frá árinu 2004. Verkefnið er brýnt í ljósi örrar hnattvæðingar og þess að aðgerðir gegn loftslagsvandanum hafa fengið aukið vægi í stefnumótun á öllum sviðum. Þá hefur alþjóðleg fjármálakreppa afhjúpað hversu berskjölduð norræn hagkerfi og stofnanir geta verið, norrænu forsætisráðherrarnir hafa sett af stað hnattvæðingarferli til að styrkja samkeppnishæfni landanna og nýjar aðferðir í samstarfi um nýsköpun hafa unnið sér sesshjá norrænum fyrirtækjum.
Norræna nýsköpunarmiðstöðin mun stýra þessu verkefni. Í nýrri hvítbók um nýsköpun verða ellefu kaflar með tillögum um aðgerðir til að efla nýsköpun og sprotastarfsemi. Hún mun koma út um mitt ár 2009.

